Lýsing
SRAM Centerline X bremsudiskur – 180 mm, 6 bolta, með ávölum brúnum
SRAM Centerline X er tveggja hluta bremsudiskur með endurbættri hönnun og stóru hemlunaryfirborði sem veitir aukinn hemlunarkraft og dregur úr því að hemlunargeta minnki við mikla hitun (brake fade).
Endurhönnuð diskmiðja úr áli, með sjö festipunktum fyrir hemlunarhringinn, stuðlar að betri hitaleiðni og minni þyngd. Jafnframt dregur hönnunin úr titringi disksins við hemlun og minnkar þannig bremsuhávaða.
Ávalar brúnir disksins draga úr hættu á meiðslum og uppfylla viðmið Alþjóða hjólreiðasambandsins (UCI). Þær auðvelda einnig uppsetningu hjólsins þar sem ávöl efri brúnin minnkar hættu á að diskurinn festist skakkt í bremsuklossanum.
Tæknilegar upplýsingar
-
Gerð: Tveggja hluta bremsudiskur
-
Þvermál: 180 mm
-
Festing: 6 bolta
-
Efni: Stál og ál
-
Efni skrúfa: Títan
-
Þykkt hemlunarhrings: 1,8 mm
-
Litur: Silfur og svartur
-
Þyngd bremsudisks: 123 g
-
Þyngd 6 títanskrúfa: 7,7 g
Innifalið
-
1 SRAM Centerline X bremsudiskur
-
6 Torx-festiskrúfur úr títan



