Sram Red flattop keðja 12 gíra


Verð:
Söluverð15,995 kr

Lýsing

SRAM RED Flattop keðja | 12 gíra | E1 – silfur

Léttari, sterkari og endingarbetri

SRAM hefur gert sína léttustu og endingarbestu keðju enn léttari – án þess að fórna styrk eða endingu. HollowPin-hönnunin er bæði léttari og sterkari en hefðbundnir heilir pinnar og útskurður í innri og ytri hlekkjum minnkar þyngdina um 13 g frá fyrri kynslóð.

Útkoman er léttari, hraðari, sterkari og endingarbetri keðja með framúrskarandi afköstum.

Eiginleikar SRAM RED keðjunnar

  • Hard Chrome-húðaðir innri hlekkir og rúllur draga úr sliti og auka endingu
  • HollowPin-hönnun fyrir aukinn styrk og skilvirkni
  • Sérlega léttir innri og ytri hlekkir með útskorinni hönnun
  • Hönnuð fyrir 12  gíra SRAM drifrásir

Flattop™

Til að nýta breiðara gírasvið X-RANGE™ kasetta og tryggja mýkri gírskiptingar með minni stökkum á milli gíra þarf mjórri keðju.

Til að tryggja að endingin skerðist ekki hefur SRAM aukið efni á flötu hlið ytri hlekkjanna og Hard Chrome-húðað hnoðin, innri hlekkina og fóðringarnar.

Flattop™ keðjurnar eru því ekki aðeins endingarbetri en 11 gíra keðjur heldur bjóða þær einnig upp á að minnsta kosti jafn góða skilvirkni.

Innihald

  • SRAM RED Flattop keðja

You may also like

Recently viewed