Lýsing
Suomi Tyres Routa W176 26 × 1,75 – Nagladekk
Öflugt og endingargott nagladekk, hannað fyrir krefjandi vetraraðstæður á Norðurlöndum. Suomi Tyres Routa W176 veitir gott grip á snjó og hálku án þess að fórna óþarflega miklu í rennsli. Mynstrið er hannað með gott grip og lágt veltiviðnám í huga og 240 slitsterkir karbíðnaglar veita öruggt grip við erfiðar vetraraðstæður.
Endurskinsrönd á hlið dekksins eykur sýnileika í myrkri.
Eiginleikar
- Stærð: 50-559 (26 × 1,75")
- 240 karbíðnaglar
- 60 TPI karkassi
- Stálvír í dekksbrún
- Endurskinsrönd á hlið
- Hentar vel fyrir íslenskar vetraraðstæður


