Lýsing
Suomi Tyres Routa W212 24 × 1,75 – Nagladekk
Öflugt og fjölhæft finnskt nagladekk, hannað fyrir krefjandi vetraraðstæður. Suomi Tyres Routa W212 veitir gott grip á ís og snjó, en hentar einnig vel á blautu og köldu malbiki.
Dekkið er búið 212 slitsterkum karbíðnöglum í fjórum röðum sem tryggja gott grip og stöðugleika. Fínt skorið slitlagsmynstur eykur snertingu við undirlagið og vetrargúmmíblandan helst mjúk og sveigjanleg í kulda.
Skinwall-uppbygging heldur þyngd dekksins niðri og endurskinsrönd á hlið eykur sýnileika í myrkri.
Mælt er með að keyra nýtt nagladekk rólega fyrstu 50 km svo naglarnir setjist rétt í dekkið.
Eiginleikar
- Stærð: 47-507 (24 × 1,75")
- 212 karbíðnaglar í fjórum röðum
- 60 TPI karkassi
- Hámarksþrýstingur: 5,0 bar
- Vetrargúmmíblanda sem helst sveigjanleg í kulda
- Létt Skinwall-uppbygging
- Endurskinsrönd á hlið
- Framleitt í Finnlandi
- Hentar vel fyrir íslenskar vetraraðstæður


